Vilt þú lofa eða lasta

Hér gefst þér áhorfandi góður möguleiki á því að lofa eða lasta fyrirtæki og stofnanir fyrir þjónustu sína.

Lof þitt eða last sendir þú í tölvupósti á vidar@herkill.is
Þú skrifar fullt nafn, netfang, og síðan lýsingu á því sem brennur á þér, hvað villtu lofa eða hvað villt þú lasta.

Í þeim tilfellum þar sem ekki er gefið upp fullt nafn og netfang í póstinum verður ekki hægt að birta efnið frá viðkomandi. Það þýðir samt ekki að netföngin og nafnið birtist endilega. Hver og einn getur valið hvort að hann lastar eða lofar undir nafni. En nafnið er samt á skrá hér hjá okkur.

————————————————————————————-

LOF
Lof fær Besti flokkur Jóns Gnarr fyrir að veita okkur valkost.

LOF
Lof fær Icelandair fyrir frammistöðu sína á afar erfiðum tímum.

LAST
Fær forseti Íslands fyrir ummælin um mögulegt Kötugos.

LOF
Lof fær Viðar og ÍNN fyrir þennan skemmtilega þátt og sérstaklega að hafa hann aðgengilegan á netinu. Flott framtak hjá ykkur. Bestu kveðjur.

Elías Guðmundsson
Skipagötu 3 430 Suðureyri

LOF
Fær veitingahúsið Austur fyrir nýja steikhúsið sitt. Frábær matur og mjög góð þjónusta. Gríðarlega miklar framfarir frá því sem var áður. Virkilega hægt að mæla með þeim.

LAST
Fáum við íslenska þjóðin fyrir að trúa blekkingum þessara útrásar víkinga alltof lengi. Það eina sem þessir menn höfðu var óheftur aðgangur að fjármagni og ómæld græðgi. Engin þekking, engin geta, engin snilld því miður.

LOF
Fær Rannsóknarnefnd Alþingis fyrir gott yfirlit á íslenska bankabrjálæðinu.

LOF
Fær Vilhjálmur Bjarnason fyrir að vera trúr sannfæringu sinni og afþakka gjafabréf frá Iceland Express eftir úrslitaþátt Útsvars.

LOF
Fær starfsstúlkan í miðasölunni í Salnum Kópavogi. Fyrir að vera sérlega lipur og hjálpleg.

LAST
Fær Ferðamálastjóri fyrir ummæli sín um „Fjármunir ferðamálayfirvalda séu … takmarkaðir, þeim fjármunum sé ef til vill betur varið í að kynna landið þegar engir sérstakir atburðir á borð við eldgos standi yfir (frekar en að kynna landið fyrir erlendum fjölmiðlum þá).“

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.