Um þáttinn

Alkemistinn er sjónvarpsþáttur um markaðsmál sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni ÍNN.

Fyrsti þáttur fer í loftið miðvikudaginn 3. febrúar 2010 klukkan 21:00

Umjónamaður er Viðar Garðarsson MBA, markaðsráðgjafi og kvikmyndaframleiðandi.

Á bak við þáttinn er hópur ráðgjafa sem vinna með umsjónarmanni að efnisöflun og mótun þáttarins. Þeir eru í stafrófsröð:

Björn Þórir Sigurðsson (Bússi) – markaðsstjóri Árvakurs
Edda Heiðrún Geirsdóttir – markðsstjóri Össurar
Elísabet Sveinsdóttir – markaðsráðgjafi og fyrrverandi formaður ÍMARK
Friðrik Eysteinsson -  aðjúnkt í markaðsfræði við viðskiptafræðideild H.Í.
Guðmundur Arnar Guðmundsson -  einn af markaðsstjórum Icelandair
Gunnlaugur Þráinsson – markaðsstjóri N1
Jón Þorvaldsson – framkvæmdastjóri Eflir almannatengsl
Kristján Már Hauksson – eigandi Nordic eMarketing
Kristján Schram – markaðsráðgjafi Íslensku auglýsingastofunni
Margrét Tryggvadóttir – sölu og þjónustustjóri Nova
Ragnar Gunnarsson – framkvæmdastjóri Fíton auglýsingastofu

Nafnið Alkemistinn er notað um þá sem reyna að breyta járni í gull. Segja má að sú líking eigi vel við allt fólk sem fæst við markaðsmál. Þeirra hlutverk er oft á tíðum að breyta því sem er óáþreifanlegt í varanleg verðmæti. Það var Jón Þorvaldsson framkvæmdastjóri hjá Eflir Almannatengsl og einn af ráðgjöfum þáttarins sem að lagði til þetta skemmtilega nafn.

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.