Síðan flutt

Alkemistinn hefur flutt sig um set á netinu. Vinsamlegast farið á

http://www.alkemistinn.tv

Þátturinn 20. október 2010

Rætt er við Agnar Sigmarsson og Finn Magnússon frá fyrirtækinu Transmit um markaðslausnir frá þeim sem heita Smelltu.is og Brandregard.com.
Í akademíska horninu ræðir Friðrik Eysteinsson um markaðshneigð og samhengi hennar við árangur.

Þátturinn 13. október 2010

Hér er þátturinn frá 13. október 2010.
Aðalgestur þáttarins er Gunnar Óskarsson stundakennari og doktorsnemi við Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands.  Umræðuefnið er spurningin hvort að íslenskir stjórnendur séu að nýta sér þá hugmyndaauðgi og kraft sem býr í starfsfólki.
Friðrik Eysteinsson er svo með fróðlegan pistil í Akademíska horninu um nýsköpunarfyrirtæki og ýmsar bábyljur sem einkenna stundum umræðu um nýsköpun.
Góða skemmtun.

Þátturinn 6. október 2010

Hér er þátturinn frá 6. október 2010.

Aðalgestur þáttarins er Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Umræðuefnið hræðslu auglýsingar hefur Umferðarstofa náð árangri með því að nota hræðsluauglýsingar.

Friðrik Eysteinsson er svo með fróðlegan pistil í Akademíska horninu um samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannastað.

Góða skemmtun.

Þátturinn 29. sept. 2010

Þá er fyrsti þáttur þessa hausts farinn í loftið á ÍNN.

Aðalgestur þáttarins var Dr. Þórhallur Örn Guðlaugsson dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Umræðuefnið var hefur Ísland eða vörumerkið Ísland beðið hnekki á erlendir grund eftir hrun?

Friðrik Eysteinsson er svo með fróðlegan pistil í Akademíska horninu um vörumerki og mikilvægi þeirra eftir vöruflokkum.

Góða skemmtun.

Trúboð eða markaðsfærsla?

Stormurinn í kringum kirkjuna síðustu vikur hefur verið harður og óvæginn. Líklega ærin ástæða til. Það verður að segjast eins og er að forystumenn kirkjunnar hafa verið einstaklega klaufalegir í tilsvörum sínum og ítrekað gengið fram af háttprúðasta fólki með undanbrögðum og helgislepju sem oft hefur reddað kirkjunnar þjónum fyrir horn í erfiðum málum í gegnum tíðina. En dugar ekki í dag.

Ég fór að velta því fyrir mér um daginn í miðri þessari orrahríð hver væri eiginlega munurinn á því að vera markaðsmaður og prestur. Eftir nokkuð ítarlega skoðun komst ég að þeirri niðurstöðu að veruleg fylgni væri á milli þessara starfa.

  1. Góður markaðsmaður/prestur er talsmaður samfélagsins.
  2. Góður markaðsmaður/prestur veit að vörumerkjavitund/trú er ekki ræktuð í fundarherbergjum eða á auglýsingastofum heldur í vitund almennings.
  3. Góður markaðsmaður/prestur veit að fá orð geta breytt miklu.
  4. Góður markaðsmaður/prestur er ekki aðeins meðvitaður um þarfir viðskiptavina/skjólstæðinga sinna í dag heldur líka þarfir þeirra á morgun.
  5. Góður markaðsmaður/prestur umbunar þeim sem standa á bakvið hann við störf sín.
  6. Góður markaðsmaður/prestur er virkur þátttakandi í samfélaginu.
  7. Góður markaðsmaður/prestur er eigin talsmaður.
  8. Góður markaðsmaður/prestur veit hvenær á að draga sig í hlé.
  9. Góður markaðsmaður/prestur lærir að nota þau verkfæri sem nám og reynsla hafa kennt.
  10. Góður markaðsmaður/prestur má aldrei taka sjálfan sig of hátíðlega.
  11. Góður markaðsmaður/prestur verður að trúa á sjálfan sig.

Svona gæti ég haldið áfram dágóða stund, en þið skiljið líklega hvað ég er að fara. Forpokað, miðalda, valdsmannslegt yfirbragð tilheyrir fortíðinni eða þeim tíma þegar kirkjan gat bannfært þá sem ekki vildu beygja sig undir vald hennar.  Ég held að Guðfræðideild HÍ þurfi að skoða hvort ekki þurfi að senda guðsmenn framtíðarinnar á markaðsfræði námskeið. Þar er jú aðalatriðið að læra að þekkja þarfir viðskiptavinanna og uppfylla væntingar þeirra.

Svona spara menn á RUV

Í sparnaðarskyni vegna 9% niðurskurðarkröfu ríkisins hefur útvarpsstjóri og eða dagskrárstjóri RUV ákveðið að spara með því að hætta að framleiða og sýna Spaugstofuna.

Það kemur fram í Fréttablaðinu í dag að framleiðslukostnaður á hvern þátt af Spaugstofunni hafi verið ríflega 3 milljónir króna og þeir 24 þættir sem framleiddir voru á síðasta tímabili því kostnaður upp á 72 milljónir króna.  Í fyrstu gæti maður haldið að hér væri um gríðarlegan sparnað að ræða. En er það raunin?

Allir markaðmenn vita að Spaugstofan var einn allra vinsælasti sjónvarpsþáttur landsins og nálægt því helmingur þjóðarinnar horfði á þennan þátt á hverju laugardagskvöldi. Enda seldi RUV auglýsingar á undan Spaugstofunni eins og heitar lummur.

RUV setti auglýsingar á undan Spaugstofunni í verðflokk 13 og innheimti 7990 krónur fyrir hverja sekúndu sem birt var. Út frá þessu má draga þá ályktun að tekjur RUV af Spaugstofunni hafi verið á bilinu 2,5 til 3 milljónir króna í hverri viku ef aðeins er tekið tillit til auglýsingatímans á undan þættinum.

Til viðbótar eru alltaf einhverjir sem kaupa auglýsingar á eftir sýningu og einnig á endursýningar. Því er ljóst að hér er ekki um sparnað að ræða heldur enn frekari tekjumissi stofnunarinnar.

Læðist því að manni sá grunur að hárbeittur og vægðarlaus húmor þeirra félaga núna eftir hrun hafi bitið einhverja pótintáta fast. Að skjóta niður þátt sem helmingur þjóðarinnar vill horfa á og tapa á því peningum? Klárlega asnaspark !!

Sumarfrí

Kæru vinir og áhorfendur.

Alkemistinn er nú farin í sumarfrí. Þegar liggur fyrir samkomulag við Ingva Hrafn Jónsson sjónvarpsstjóra ÍNN að Alkemistinn snýr aftur á haustdögum. Við aðstandendur þáttarins munum nota sumarið til þess að endurskipuleggja og reyna að gera enn betur þegar við mætum á ný. Vel má vera að ein og ein grein birtist hér á vefsvæði þáttarins þrátt fyrir sumarfrí.

Takk fyrir alla hvatninguna og stuðninginn við þetta framtak.

Gleðilegt sumar.

19. og 20. þáttur af Alkemistanum

Hér koma  19. og 20.  þáttur af Alkemistanum sem voru í útsendingu á ÍNN 9. og 16. júní 2010.

Aðalgestur þáttarins 9. júní er Stefán Sveinn Gunnarsson en hann er einn okkar helsti sérfræðingur um kostun.  Magnús Pálsson rekstrarráðgjafi hjá Markmiði er síðan aðalgestur minn í þættinum 16. júní.

Friðrik Eysteinsson er í akademíska horninu að vanda í báðum þáttunum.

Góða skemmtun

18. þáttur í útsendingu 2. Júní 2010

Hér kemur svo 18. þáttur af Alkemistanum sem var í útsendingu á ÍNN 2. júní 2010.

Aðalgestir þáttarins eru meistaranemarnir Brynjar Smári Rúnarsson og  Sigurgeir Gíslason. Umræðuefnið Traust til bankanna eftir bankahrun og markaðsleg viðbrögð íslenskra fyrirtækja í kjölfar bankahrunsins.

Friðrik Eysteinsson er síðan í akademíska horninu að fjalla um erindi sem flutt var á vorráðstefnu Viðskiptafræðistofnunar og fjallar um hvort nám í viðskiptafræðum stuðlaði að aukinni samkeppnishneigð.  Einnig útdeilir hann asnasparki vikunnar. Að þessu sinni eru það fjór-flokkarnir sem sparkað er í.

Góða skemmtun

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.